23.07.2008 16:54:47 / ingaje
Hér koma nokkrar leiðir til að spara í kreppunni:
1. Byrjaðu að tína dósir- margt smátt gerir eitt stórt
2.Aðeins 2 klósettbréf per skipti- nema í extreme tilfellu, 4 bréf
3.hættu að nota þurrkarann- hann eyðir óþarfa rafmagni
4.Hvar varð um allar kynningarnar í Hagkaup? Fínt að nota svoleiðis til að fæða familíuna á einum föstudegi
5. Farðu á Mac Donalds eða KFC og taktu aukabunka af tissjú- hægt að spara talsvert þar!
6.Slepptu því að fara í Kringluna eða í búðir yfir höfuð.
7.Ef það er einhver ókeypis matur í vinnunni eða þú ferð í veislur- borðaðu eins mikið og þú getur!!
8. Þú getur þóst ætla með föt í Rauða Kross gáminn og tekið með þér einn svartan plastpoka- gæti eitthvað gott leynst þar.
9.Ekki kaupa skyndibitamat! Hann kostar allt of mikið- og fiskur og kjúklingur og kjöt líka. Þannig að spaghetti í öll mál! Nei- bíddu, það er líka búið að hækka!
10. Bensín, bensín, bensín... need I go there? Fínt að tæma úr dælunni þegar búið er að dæla fyrir peninginn. Það er gert með því að lyfta "rörinu" í loftið og þá leka nokkrir dropar úr- borgar sig til lengri tíma.
Ég uppgötvaði það um daginn að ég er í meira en 1 klst að vinna mér inn eina stóra Dominos pizzu. Það er slatti. Miklu betra að sleppa því.
»
16.07.2008 19:32:39 / ingaje
Er að fara á Esjuna í fyrsta skipti- vona að það sé hægt að sækja mann með þyrlu þegar maður er kominn á toppinn... Það er svo vinsælt- sumir fara meira að segja á þyrlu í veiði og koma við og fá sér pylsu í sjoppunni.

Ef það sést rauður eldhnöttur á leið niður hlíðina um 10 leytið í kvöld- þá vitið þið að það er ég. Get samt ekki lofað því að verða ekki fjólublá.
Wish me luck....
by the way- hefur ekki fólk dáið á Esjunni? Þvílík háskaför!!
»
15.07.2008 15:01:10 / ingaje
Fór í ræktina í gær. Þegar eitthvað gott lag kemur í Ipodinn minn þegar ég hleyp, á ég það til að tromma með höndunum (af því að ég kann að tromma) og lifa mig algjörlega inn í tónlistina. Mér hefur hingað til fundist það frekar cool og að ég sé cool. En í gær sá ég mann á brettinu gera það sama og ég geri alltaf og þá sá ég að það var ekkert cool. Spurning að hugsa hvað öðrum finnst eða halda áfram að vera hallærislegur...
»
23.12.2007 00:56:59 / ingaje
Gleðileg jól og farsælt komandi ár!!
Takk fyrir gamla árið og ég veit að árið 2008 verður frábært ár- það liggur bara svo augljóslega fyrir.
Hóhó og knús,
Inga
»
14.11.2007 10:01:38 / ingaje
Það er nuddari sem kemur alltaf á 2 vikna frest í vinnuna, hún heldur sig til inni á klósetti á 5. hæð hússins og er þar með stól. Þar getur maður fengið smá herðanudd og baknudd.
Ég ákvað að nýta mér þessa þjónustu í gær og skráði mig á lista og beið svo fyrir utan klósettið eftir að kæmi að mér. Út gekk kona - sem ég hef aldrei séð áður og ég vippaði mér að henni: "var þetta ekki gott"? spyr ég hana mjög forvitinn. Konan horfir skringilega á mig og segir "jah, miðað við að ég var á klósettinu- þá var þetta bara nokkuð gott". Mér bregður í brún og spyr hana hvort hún hafi ekki verið í nuddi og þá segir hún mér að það sé á 5.hæðinni en ég sé á þeirri 3.
Jah, svona geta hlutir þróast í vandræðagang. Ég er farin að sjá það að nudd er kannski ekkert fyrir mig!!
»
10.11.2007 16:40:20 / ingaje
ég var að horfa á myndband með hljómsveit Pete Doherty og varð þá hugsað til fyrrverandi kærustu hans Kate Moss. Ég er enginn aðdáandi en uppgötvaði þá mér til hrellingar að svo virtist einmitt vera. Börnin mín heita nefnilega í höfuðið á þeim, þe. Pétur og Katrín. Ég get samt fullvissað lesendur um að það er ekki út af einskærri dýrkun á viðkomandi fyrrverandi pari....
»
02.11.2007 22:33:22 / ingaje
Ég sá einu sinni mynd sem heitir "pay it forward", sem í meginatriðum merkir það að senda góðverk áfram.
Ég fór til læknis á þriðjudaginn, var búin að bíða eftir tímanum síðan í júlí og loksins var ég mætt. Ég þurfti að keyra á húðlæknastöðina í Kópavogi sem er ca. 15 mín. akstur frá vinnunni. Þegar ég kem upp á 2.hæð í Smáratorgi, kemur maður út úr lyftunni með litla stelpu. Hún er hágrátandi, þar sem hún hafði klemmt puttann í lyftunni. Við förum saman inn og ég tilkynni komu mína við afgreiðsluna. Svo kemur að manninum og hann segir að dóttir hans eigi tíma á sama tíma og ég hjá sama lækni. Þá kemur í ljós að hann var einum degi of snemma og hann varð fyrir miklum vonbrigðum- enda ekki auðvelt að fá frí úr vinnu, sækja barn í leikskóla osfrv. Þannig að ég bauð honum bara að fá tímann minn og ég myndi bara koma daginn eftir. Maðurinn var rosalega þakklátur þó svo að hann hafi fyrst verið tregur við að taka við "gjöf" minni. Ég held líka að hann hafi alls ekki búist við því að einhver væri tilbúinn að gera þetta. Ég gekk út, rosalega ánægð en án þess að hafa farið til læknis. Það skipti engu máli fyrir mig- ég kom bara aftur daginn eftir.
Ég mæli með því að þið sem lesið þessa sögu, gerið eitthvað góðverk. Manni líður alveg svakalega vel eftir það. Ég ætla að vera dugleg að hjálpa fólki og vona að það verði svo gott við einhvern annan. Að lokum líður öllum vel og fólk fer að líta í kringum sig í stað þess að hugsa um sinn eigin rass.
Live well....
ps. ég keypti meira að segja lyklakippu af björgunarsveitinni í dag, góðverk á dag kemur skapinu í lag....
»
18.10.2007 23:22:06 / ingaje
Ég fór til Búdapest síðustu helgi. Ferðin hefur fengið nafn og er það í höfuðið á hinum nýuppgötvaða Mojito drykk. Við vorum 8 stelpur saman og vöktum mikla athygli þar sem við töluðum hátt og vorum allar rosalega ólíkar íbúum borgarinnar- þe. engin okkar var með rautt hár.
Búdapest er þekkt fyrir að vera "spa city", með mikið af sundlaugum og hægt að fara í nudd á hverju horni. Við ákváðum að skella okkur í svona "lúxus treatment" og fórum í eitt af virtustu baðhúsum borgarinnar. Við pöntuðum okkur allar nudd og hlökkuðum mikið til að slaka á í höndum Ungverjanuddarana sem þar störfuðu. Við vorum leiddar upp á aðra hæð í svokölluð búningsherbergi, þar sem við fengum okkar klefa til að afklæðast og klæðast sundfata. Nokkrar fóru í pottinn á meðan hinar fóru í nudd. Ég var full tilhlökkunar, þar sem ég var sannfærð um að húsmæðrarþreytan yrði nudduð í burtu á þessum hálftíma sem nuddið tók. Eftir smá tíma var okkur bent á að fara upp þar sem voru 4 herbergi með hurðum. Á miðjum ganginum þar sem við biðum, lá nakin kona á bekk- í allra augsýn. Hún hefur varla slakað mikið á þar sem karlar voru að bera plöntur og gengu framhjá henni með reglulegu millibili. Hurðirnar á nuddherbergjunum opnuðust inn fóru vinkonur mínar. Ég sat ein eftir og öfundaði þær sárlega að vera komnar inn á undan mér. Loksins kom kona og sagði mér með ákveðnu handapati að fylgja sér inn í eitt af herbergjunum. Ég var rosalega spennt, farin að sjá fyrir mér kertaljós og slökunartónlist. En mér skjátlaðist þar sem ég kom inn í vel lýst herbergi með hvítum flísum, einum vaski og einu legubekk í einu horni herbergisins. Sú ungverska skipaði mér með táknmáli að fara úr sundbolnum og leggjast á bekkinn. Ég fór að sjálfsögðu að hennar skipun og lagðist kviknakin á borðið með höfuðið í átt að hurðinni. Hún skipaði mér að snúa mér í hina áttina þannig að þarna lá ég með tærnar þar sem áður var höfuðið- semsagt með rassinn út í loftið. Kerlingin byrjaði að nudda mig. Ég leit upp og sá að hurðin var galopin, bað hana vinsamlegast á ensku að loka hurðinni en hún þóttist ekki skilja hvað ég sagði, þannig að hurðin var opin. Þarna lá ég á meðan konan nuddaði mig um leið og hún bruddi brjóstsykur og hvíslaði eitthvað á ungversku. Ég heyrði umgang frammi en passaði mig að hafa augun lokuð til þess að reyna að slaka á. En allt kom fyrir ekki. Mig langaði mest til að stökkva upp og fara, en einhverra hluta vegna lá ég þarna og sagði ekki orð. Skyndilega var önnur kona komin inn í herbergið og þær ungversku byrjuðu að tala. Ég reyndi að ímynda mér hvað þær væru að segja "vá, þessi er sko með bólur á rassinum", "sérðu appelsínuhúðina". En ég reyndi að bægja þeirri hugsun frá mér. Að lokum fór hin konan og lokaði (hjúkket) hurðinni á eftir sér, eins gott þar sem konan skipaði mér að snúa mér við. Hún skvetti á mig einhverri olíu og hélt áfram að strjúka mér. Þarna lá ég allsnakin og bjargarlaus- með ekkert til að fela mig á bakvið. Loks hélt ég að þetta væri búið en þá skipaði kerlingin mér að setjast upp. Ég sat þarna með krumpaða magann minn á meðan konan strauk á mér hendurnar og bringu.
Loksins var þetta hræðilega móment búið og ég hélt til vinkvenna minna í pottinum. Að sjálfsögðu kom í ljós að hinar nuddkonurnar hefðu allar verið rosalega tillitsamar, lokuðu hurðinni og sett efnisbút yfir ákveðinn hlut þegar þurfti að liggja á bakinu. En ég.... neiiiiii.... ég fékk ekkert svoleiðis!
Ég var guðslifandi fegin að fara aftur í sundbolinn og gat varla beðið eftir að komast út. Næst þegar ég fer í nudd, fer ég bara í nudd á Íslandi!
»
05.10.2007 18:57:22 / ingaje
Það er æðislegt að vera hamingjusamur, því það er alls ekkert sjálfsagður hlutur. Konan gleymdi því hvernig það var og var ávallt úrill eftir langan vinnudag, en í dag er hún orkumeiri og glöð þegar hún kemur heim. Hamingjan ber ekki að dyrum, hún er tilfinning sem læðist aftan að manni og skyndilega uppgötvar maður að maður sé hamingjusamur. 
»
28.08.2007 21:11:32 / ingaje
Jæja, nú er 10 ára bankaferli mínum lokið - enda kominn tími til. Það er rosalega skrýtið að hætta einhverju sem maður er vanur- en breytingarnar eru af hinu góða. Ný og spennandi vinna tekur við og er frábært að fá tækifæri til þess breyta til.
Í síðustu viku fékk ég að vita að hundurinn okkar hún Snúlla (býr hjá mömmu og pabba), væri orðin eitthvað skrýtin- enda tólf ára gömul (sem gerir 86 mannsár). Á mánudaginn fór pabbi með hana til dýralæknis og kom í ljós að Snúlla þyrfti að fara í aðgerð en þar sem hún væri orðin svona gömul, væri kannski best að hún fengi að fara. Og hún fékk að fara
Það versta var að ég fékk ekki að kveðja hana einu sinni. Þegar hundur deyr, þá er eins og að missa fjölskyldumeðlim, maður er hálftómur og sorgmæddur. Ég vona bara að henni líður betur núna, litlu Snúllu minni, snöft.....
»
05.08.2007 00:24:55 / ingaje
ég skrapp í Húsdýragarðinn í dag með familíunni, var búin að sjá
fyrir mér svona danska ferð í garðinn, með nesti og lítinn pening.
Við byrjuðum á því að skoða öll dýrin og fórum í hringekjuna. Síðan
kom hádegi og við Katrín keyptum okkur pylsu til að grilla. Minn
spúsi hafði engan áhuga á að borða úti en gaf undan þegar hann
heyrði hugmynd mína um þessa rómantísku ferð í garðinn. Við
settumst á bekk og við Katrín borðuðum pylsuna af bestu lyst. Á
meðan skoppaði Einar um eins og brjálæðingur, hristi fötin sín og
sagði ahhhhh.... á 5 sekúndna fresti. Ég skildi ekkert í þessu þar
til ég uppgötvaði að hann var að reyna að flýja alla geitungana sem
tekið höfðu sér bólfestu í garðinum. Einn sveimaði í kringum
munninn á Katrínu og þá hafði Einar fengið nóg. Hann hrópaði á
Katrínu "slepptu pylsunni!!" svo tók hann á rás með hana og hljóp,
ég heyrði hann segja- "ég er farinn inn!". Þannig lauk rómantísku
ferð minni í garðinn- inni í hvítu tjaldi á plaststólum.
»
31.07.2007 00:31:42 / ingaje
Ég rakst á fullt af gömlum bréfum frá 1993 og 1998. Ótrúlega
fyndið að lesa þessi bréf sem varla fjalla um annað en djamm, djús
og stráka. Ég sé það að þetta er aðaláhugamál ungra kvenna. Maður
er bara svo rosalega fljótur að gleyma svona löguðu.
Svo fann ég líka flest öll jólakort ever written to me, þannig
að ég get fundið út hverjir hafa sent mér jólakort og hverjir
ekki!!! Ég er konan sem aldrei gleymir...
»
14.06.2007 23:31:40 / ingaje
ákvað að setja mynd af sætu börnunum mínum svona til
tilbreytingar 
»
08.06.2007 00:26:19 / ingaje
ég sat í bíl á ljósum í dag og varð litið í bílinn við hliðina.
Maðurinn var svo gamall að ég hélt að hann væri dáinn. Ég fór að
fylgjast með honum og hann var grafkyrr. Ég var búin að ákveða að
ef hann færi ekki af stað þegar ljósið yrði grænt- ætlaði ég að
hringja í lögguna. En viti menn- gamli karlinn hrökk í gírinn og
brunaði á undan mér.....
»
04.06.2007 17:28:15 / ingaje
Hrós helgarinnar fær árgangurinn minn úr MR. Ótrúlega
skemmtilegt reunion, ég skemmti mér ótrúlega vel og verð að segja
að mikið áfengi var haft um hönd þetta kvöld. Ætli vikan
verði ekki tekin í að jafna sig eftir þennan frábæra fögnuð!!
Respect....
»
Síður:
1 2 3 ...
17